Auðlindagjald á orma
Hér í Namibíu er ákveðin ormategund talin mikið lostæti. Mopane ormar
nefnast þessar kræsingar. Yfirleitt fer tínslan fram í mars og apríl á
hverju ári og birtist þá sölufólk á útimörkuðum með þetta sælgæti. Ég
hef nú aldrei orðið svo frægur að leggja mér þá til munns. Á kannski
eftir að gera það einhvern tímann.
Hvað um það. Fyrir tveimur dögum, eða svo, birtist lítil frétt í
Namibian sem mér þótti athyglisverð. Konungurinn í Uukwaluudhi, Josia
Shikongo Taapopi, hefur gefið út tilskipun að allir þeir sem ætla að
tína Mopane ormana á hans svæði verða að gjöra svo vel að skrá sig
fyrst á héraðsskrifstofunni í bæ sem heitir Tsandi. Ekki nóg með það,
heldur má ekki byrja tínsluna þar til konungurinn leyfir og einnig
verða tínendur að greiða fyrir forréttindin að tína ormana. Ekki er enn
búið að ákveða hversu há greiðslan verður, en tilkynnt verður um
upphæðina þegar tínslutímabilið hefst.
Uukwaluudhi er lítið hérað innan Omusati sýslu og á öðrum svæðum í
kringum Uukwaluudhi þarf ekkert að greiða fyrir að tína orma. Haft er
eftir ormasölumönnum í Oshakati að ormarnir séu „gjöf frá Guði“ og því
ætti enginn að þurfa að greiða fyrir að tína þá.
Eitthvað minnir þetta mig á fiskinn í sjónum...

2 Athugasemd(ir):
At 16:30,
Nafnlaus tjá%eth;i sig svona…
HA 2 blogg ég skil ekki ... hjálp
At 18:45,
Anastácio Soberbo tjá%eth;i sig svona…
Hello, I like this blog.
Sorry not write more, but my English is not good.
A hug from Portugal
Hallo, schön Blog.
Leider nicht mehr schreiben.
Eine Umarmung aus Portugal
Skrifa ummæli
<< Tilbaka í litlu fréttirnar